6.M-Je t'aime
Tenglar sem tengjast rækjum á einhvern hátt
12.05.2008 13:56:36 / emmið

wooo

Var einmitt að lesa stærðfræðigreiningu IV þegar ég mundi eftir myndasögunum hennar sigrúnar hérna til vinstri :D

Þessi með þrepasönnuninni er frekar awesome tbh


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 10:02:36 / emmið

Bekkjarhittingurinn

 Takk fyrir hittinginn(: Geggjaður planari Auður og geggjaður partýhaldari ólöf(;

Love Olgan


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 19:48:59 / emmið

26.janúar 2008

hæ hæ allir :) Vildi bara segja að foreldrar mínir voru svo elskulegir að leyfa mér að halda smá party eftir matinn þann 26.janúar fyrir bekkinn :) þannig að endilega takið áfengi með ykkur og við tökum eitt gott 6m djamm á þetta ;) Sjáumst hress ;) Ástarkveðja Ólöf

» 12 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 14:53:19 / emmið

Staðfesting!!!!!!!!!

Sælinú

 nú er þetta staðfest og engar frekari breytingar verði hér með gerðar nema vegna mikilla hamfara eða einhvers í þá áttina :Phihih

En ég er búin að panta borð á Rossopomodoro sem er á Laugavegi 40a 101 Reykavík. rossopomodoro.is ef þið viljið kíkja á matseðil :D

Ég byrjaði á að reynað panta  borð á Caruso en þar er einhver hópmatseðill sem allir þurfa að panta og mér fannst það soldið kjánalegt að allir þyrftu að panta sama og mér fannst líka þetta ekkeret sérstaklega spennandi. 8|

OK eigum borðið pantað kl 20:00 og verið tímanlega ;) það er sooo leiðinlegt að þurfa að bíða á sona veitingastöðum eftir hóp :P

 

Kær kveðja og vona að sjá ykkur sem flest kveðja Auður Hanna

P.S. Sorry eg veit að eg er pirrandi að láta ykkur alltaf kommenta en ég verð að vita hversu margir koma til þess að fólkið á Rossopomodoro geti skipulagt borðaskipanina, eg sagði við þau 15 -20 sooo við erum með smá ramma en hún vildi endilega að ég segði nákvæma tölu.


» 16 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 17:10:13 / emmið

okei

hmmmmmmm jæja nu eru nokkrir búnir að spyrja hvort þetta geti ekki frekar verið á laugardeginum 26 jan ???' Sumir fara í próf á lau , aðrir í vísindaferðum og fleira.  Mér er alveg sama soooo komment people:haha: Fjöldinn ræður,  :P

 Ég vil barað sem flestir komi :P

Kveðja Auður Hanna

P.S. Endilega verðið buin að svara á fimmtudaginn 8| þá panta ég borð og skrifa lokafærslu :E veiiiii


» 15 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 15:04:02 / emmið

Næstum búið að festa þetta :P

Ok sýnist flestir vera til í 25 janúar sem er föstudagur;) en vona að þeir sem eru að vinna þá eða eitthvað uppteknir geti fært til eða eitthvað. En allavega það er so erfitt að gera soo allir komast en maður vonar auðvitað alltaf það besta. Síðan mun ég alveg plana aftur svona svo örvæntið eigi hahah.

 

Ég var að pæla er ekki skemmtilegra að fara á Ítalíu eða Caruso eða einhvern stað í þeim klassa þannig maður geti pantað borð og verið öll saman í stað þess að vera kannki á american style (sem er samt ýkt gott :D) og vera öll á sitthvoru borðinu og bara vesen??? 

 

En ég vil bara farað staðfesta þetta sem fyrst soo allir sem þurfa að skipuleggja eitthvað geti planað þannig að þau séu laus þennan dag :D það er ekki eins og við séum að hittast á hverjum degi :$

 

kv Auður hanna aka the plan master :lol: 


» 13 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 19:11:24 / emmið

Matartími :P

Sæææl

 Mér sýnist flestir komast eftir 20 jan. soo eigum við ekki bara að festa þetta? Hvað segiði um föstudaginn 25 janúar? Komast allir þá? :haha: eða viljiði kannski frekar hittast á virkum degi þannig fólk komist í vísindaferðir :P  en allavega ef við höfum þetta á föstudegi þá getum við haft afsökun til að detta í það öll saman til að minnast the good old days 8) en jæja komið skoðun ykkar á framfæri

komment komement komment :D:D og endilega segiði hvað þið viljið helst :lol:

Kveðja Auður Hanna

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 23:38:27 / emmið

MATUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! :)

Ég var að pæla hvort það væri einhver stemmning í gamla bekknum að fara öll saman út að borða? Ef svo er ;) þá er spurningin hverjir komast og hvaða dagur hentar?

Allir að kommenta og láta alla sem þið heyrið í vita af þessu Takk æðislega :haha:

 

Kveðja Auður Hanna lukkudýr8| 


» 17 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 02:10:44 / emmið

It's alive !!

aloah! ég er veik heima á laugardagsnóttu og ég er búin að grandskoða alla skemmtun sem hægt er að finna á netinu og endaði á að skoða gamlar færslur á þessari síðu...algjör snilld. Er búin að skella upp úr oft og mörgum sinnum...en ég vildi bara láta ykkur vita að yahoo myndaforritið er búið að loka og það þurfti að flytja myndirnar á flickr.com annars hefði þeim verið eiit... Svo að ef þið viljið nálgast þær þá farið þið á þá síðu, og það er sama notendanafn og password og seinast...en aftur á móti mun vera tekið á móti ykkur sem "sigga marta". Sowý...Svo smelliði bara á "your photos".  Kann ekki að gera link á þetta..kannski einhver nenni að redda því:*
Vei vei vei
Skál fyrir því!
Bæjó (:

» 20 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 00:49:28 / toggi tromma

IT'S ON

Takið laugardaginn 9.júni frá!

Þurrskeiði 6-M er lokið því Ponsinn og Jón Foli (safi) ætla að halda partý ársins í Seiðakvíslinni þetta sumarkvöld í tilefni afmælisdaga þeirra 26.maí og 14.júni.

Fáið frí vinnunni og beilið á nýju vinunum og komið í partý með gamla góða 6-M crewinu.

Jón mun stíga línudans í tilefni kvöldsins og veitingar verða í veglegri kantinum. Það er svo aldrei að vita nema Fordæmismenn taki nokkur vel valin lög....

Mæting c..a. kl. 21-22.

Kveðja Johnny and Togg.

 

 


» 17 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 22:52:15 / emmið

Írsk þjóðlög

...And you dream of blunts, and you dream of beer

and life gets terribly stale

it's dead in the morgue, but it's deader in here

there is no night out in the jail...

 

Þeir kunna að vera sídrukknir, þjófóttir þrjótar en þegar kemur að esóterískum leyndarmálum lífsins þá standa Írar skrefinu framar en Bhúdda og bræður hans.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 13:13:58 / emmið

6.M athugið!

Er það bara ég eða er soldið mikið langt síðan að það var hittingur?? Þá meina ég allt pakkið!

Þar sem að allir eru búnir í prófum og sonna hvað segiði um að hafa á næstunni eða bara einhvern tímann í sumar eitt stykki sögulegt...

 

6.M PARTÝ ?!

 

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 17:29:21 / emmið

Trip highlights!

Lofadi hau ljosunum i ferdinni minni thar sem eg er nu eiginlega a heimleid (med sma vidkomu i danaveldi) er nuna i augnablikinu a flugvellinum i Abu Dhabi, einu af sameinudu arabisku furstarikjunum ad nyta mer fritt internet hehe.

So here goes:

INDLAND:

Lenda a flugvellinum i New Delhi og hafa ekki hugmynd um hvad skyldi gera naest!

Vera bodin i mat heim til bilstjorans okkar thar sem magkona hans eldadi kjukling sem bordadur skyldi med hondum (voda litid fyrir hnifapor i indlandi:)

upplifa solarupprasina vid Taj Mahal.....okeypis, truid mer, thad er svolitid sem tharf ad hafa fyrir

Gult leirbad i fjallalind i midjum skogi a Goa, og vinirnir sem vid eignudumst thar :D

Tynast i Mumbai......en finnast aftur

KAMBODIA

Angkor Wat ad sjalfsogdu i Siem Reap

Land mine museum

Virkilega tilfinningarikur dagur i Phnom Penh thegar vid heimsottm S21, Lighthouse munadarleysingjahaelid og Killing Fields a sama deginum uff

Djammid i Shinoukville

Skellt ser a kofunarnamskeid og odlast PADI skirteini (ekkert grin:) og svo batsferdin sem fylgdi

HONG KONG

Heimsins staersti sitjandi utandyra brons budda

KINA

Bara ad vid skulum hafa komist i gegnum Kina, punktur (ad kaupa lestarmida getur verid heljarinnar mal)

upplifad kinverskt nyar

Fundid Wal-Mart i Nanning af ollum stodum 

Siglt nidur Li-river a afar litlum bat

Smakkad hund, hamad i sig nudlur og dumplings og BOWSA!

Djammad svo hart i Shanghai ad eg tyndi gleraugunum minum (aldrei ALDREI fara a fylleri med kinverskt hrisgrjonavin......thad endar bara illa)

Terracotta hermennirnir i Xian

Folkid sem vid kynntumst a Leo hostel i Beijing (gott djamm thar lika! MJOG gott)

JAPAN

Tokyo! einfalt :)

Sed alvoru geishur i Kyoto og geiko dans

upplifad lampahatidina

Tynst i Osaka...og fundist aftur

Peace Memorial Park i Hiroshima

Nobu sushi og bar ad nafni World's End (spilar Bjork!:)

Bordad allt sem telst hefdbundid japanskt

Gist a Onsen Spa hoteli

Verid hoboar

MALAYSIA

Gefid hakorlunum vid Langkawi eyju (og tha er eg ekki ad tala um ad kasta einhverju fyrir bord, vid vorum med theim.......a tiu metra dypi!!!!)

Haldid uppa afmaelisdaginn minn i Kuala Lumpur, the place to be

INDONESIA

ALLT (thokk se Ernu hehe)

Bogor skemmtilegur smabaer thar sem er haegt ad versla fyrir  smaaura, Jakarta hofudborgin thar sem djammid er gott og folkid betra og audvitad hitabeltisparadisin Bali! Ad eg tali nu ekki um hann Remi elsku :D

Og eitt i vidbot.....su stadreynd ad eg a eftir ad sakna thess ad: vera annad hvort alltof kalt eda alltof heitt, geta bara badad mig uppur koldu vatni, hafa ekki adgang ad sturtandi klosetti, thurfa alltaf ad drekka floskuvatn, deila herbergi med moskitoflugum og kakkalokkum og deila mat med maurunum, verda naestum thvi alltaf ALLTAF fyrir bil/motorhjoli/hestvagni/gangandi vegfaranda, ferdast med angkot...........og skilja aldrei baun hvad folk i kringum mig er ad segja!!

 

 

Og thar hafidi thad!

Vona bara ad thid hafid verid ad  fylgjast med okkur a www.xanga.com/asiur, ef ekki tha getidi aldeilis eytt fostudagskvoldi i ad lesa faerslurnar fra byrjun muhahaha

minni lika a myndir a www.photos.yahoo.com/surargurkur

Aetlud heimkoma svo manudaginn 21. mai

 

Kaerar kvedjur fyrrverandi bekkjarfelagar

Listaspiran sem hefur nuna sed heiminn

P.S. Erna bidur ad heilsa :D :D :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 15:58:29 / HöddiCool

Bombay TV

Þar sem sum okkar eru í prófum, önnur á flakki um heiminn og restin að djamma þá fannst mér alveg tilvalið að starta trendi og varpa fram alþjóðlegri skemmtun en þar á ég að sjálfsögðu við inverska kvikmyndagerð með íslensku textaívafi.

 http://www.grapheine.com/bombaytv/index.php?module=see&lang=uk&code=1c94a94b975a8a42f49268ee106231dd
http://www.grapheine.com/bombaytv/index.php?module=see&lang=fr&code=394521a18a46ea65bc596a2780edc8c2 

 Þessa fyrri kalla ég ,,hið nasíska uppeldi" og hina seinni ,,samskipti kynjanna". Endilega postið ykkar eigin video-um.


» 16 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 00:53:20 / emmið

Faðmlag hins þögla huga

Faðmlag hins þögla huga 

Þarna sat ég, með ást lífs míns mér við hlið. Við höfum þekkst lengi, Einsemd mín og ég, verið órjúfanlegir hlutar lífs hvors annars frá ómunatíð. Saman höfum við klifið hæstu fjöllin Íslands, lesið mestu bókmenntaverk manna og rökrætt um sannleikann, hið rétta.

En á þessu eina staka augnabliki ríkti milli okkar þögnin. Engin orð, engin hugsun – einungis órofin skynjun óendanlegrar fegurðar hinnar mikilfenglegu tilveru. Friður. Kærleikur. Lífsfylling.

En guð bannaði okkur hamingju. „Þú munt erfiða í sveita þíns andlits“ sagði hann, og var ekki að djóka. Dýrðin var mín eitt andartak, kom án þess að heilsa – fór án þess að kveðja. Óvænt, óboðin en velkomin. Augnablik þekktist ég hamingjuna, en tapaði henni um leið. Guð, vargurinn argi, lét mig rifja upp samræður mínar við stúlku fyrr sama dag. Við Einsemd þögðum ei meir.

„...einu sinni var ég íþróttamaður, en í dag hef ég helgað mig bókmenntum.“

„Kúl. Ég elska Harry Potter.“ svipbrigði hennar báru ekki snefil efa um hvort Harry Potter teldist til bókmennta. Alger fjarvera menningarsnobbs. Mér þótti það einkar kynþokkafullt.

„Ég fíla Harry Potter líka. Orð fá því ekki lýst hve spenntur ég bíð eftir 21. júlí.“

„Nei, þú misskilur. Ég ELSKA Harry Potter. Elska elska. Einsog og giftingar og kynlíf elska.“ Hún hafði falleg brún augu og sérstæð áberandi kinnbein. Hún geislaði gáfum. Þegar hún brosti sást örlítil óregla neðri framtanna hennar. Sætt bros.

„Veistu, þetta er áhugaverðasta blæti sem ég veit um. Miklu töffaðra en dvergatrúðaklám.“ sagði ég heiðarlega, kaldhæðnislaust.

„Jáh, mitt helsta áhugamál er einmitt að skrifa fanfic um gróft kynlíf milli kennara og nemenda í Hogwarts-skólanum.“

„ó segðu mér meira“ sagði en ég það þurfti ekki því ég var þá þegar ástfanginn. Fyrsta mjóa stelpan sem ég kynntist í gegnum einkamal.is reyndist skemmtileg og spennandi. „Sigur“ hugsaði ég með mér.

----

Um daginn osmósaðist ég í hafnfirskt sprautupartý. Rakst á Hökutopps-Einar. Kallaði á hann, hátt og hresst, einsog ég væri versti spaðatappi: „Einar mar! Blessar félagi!„Sælir,“ sagði hann, eitt bros yfir því að slíkur spaði skyldi kannast við hann. Einar lýsti af gleði. „Hvaðan þekki ég þig aftur?“

„Ég var með Önnu í bekk í MR.“ Það sást hvernig hann tók við þessum upplýsingum. Í sekúndu var hann hugsi, en svaraði loks með þunglyndislegum fýlusvip, muldraði já og sneri sér annað.

---

E.s. Hvað varð af bloggröðinni sem Agnes átti að byrja. Erum við ennþá að bíða eftir Agnesi?


» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21